Fotbolti.net
13.07.26 - 22:42
Gylfi Már Þórðarson

Ólafur Ingi: Sjálfur hefði ég viljað fá víti

Auglýsing
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks faðmar Kristin Jónsson í leikslok

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks faðmar Kristin Jónsson í leikslok

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason var að vonum glaður þegar hann mætti til viðtals eftir 2-1 sigur sinna manna gegn Keflavík en sigurmarkið kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

"Við vorum búnir að vera að banka aðeins, búnir að þrýsta aðeins á þá og það var gott að sjá boltann inni." sagði Ólafur um markið sem réði úrslitum í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Keflavík
"Mér fannst við vera búnir að grafa okkar eigin holu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við vorum full passívir heilt yfir og sérstaklega sóknarlega. Við vorum ragir við að þora að tengja á milli lína, spila á mann sem var með mann í bakinu. Mér fannst við ekki hreyfa þá nógu hratt, mér fannst við vera pínu fyrirsjáanlegir, spila ítrekað í þeirra pressu og láta reka okkur til baka. Við vildum fá meiri persónuleika í seinni hálfleikinn. Koma með örlítið meiri ákefð og hugrekki og mér fannst við gera það ágætlega. Frammistaðan var upp og niður en það góða við það er að við fáum þrjú stig."

"Keflvík er með hörkulið, þeir eru vel skipulagðir og erfiðir við að eiga og það er fullt af gæðum hjá þeim. Conteh hefur komið vel inn í þeirra lið og eru með hættulega menn sem geta sprengt leikinn upp. Við áttum von á þeim þetta sterkum og erfiðum leik sem við fengum."

Keflvíkingar voru ekki ánægðir með tvær ákvarðanir dómaratríósins. Annars vegar þegar mark var dæmt af þeim vegna rangstöðu og hins vegar þegar dæmt er brot í aðdraganda marks sem þeir skora undir blálok leiksins.

"Ég hef ekki séð þessa rangstöðu, svo ég hef bara ekki hugmynd um það, ég á eftir að skoða þetta. Varðandi brotið þá sýndist mér þetta bara vera brot á Kidda og ég held að Anton hafi verið hættur eftir að hann flautaði svo ég er ekkert viss um að hann hafi legið inni. Sjálfur hefði ég viljað fá víti þegar Jónatan er tekinn niður í teignum en þetta er bara partur af leiknum."

Hlynur Freyr Karlsson er á leið til Breiðabliks á láni frá sænska félaginu Brommapojkarna.

"Það er frábært. Hann er uppalinn Bliki og kemur með ótrúlega mikil gæði innan vallar sem utan. Hann er sterkur karakter sem kemur til með að styrkja okkur vel."

Árni Vilhjálmsson samdi við Stjörnuna, reynduð þið að fá hann?

"Við heyrðum í honum og höfum verið í samskiptum við hann. Ég held að honum hafi bara litist best á Stjörnuna, kannski sýndu þeir meiri áhuga."

Dagur Fjeldsted átti frábæran leik gegn ÍA í síðustu umferð en hóf leikinn í kvöld á bekknum.

"Það var bara taktískt. Hann var frábær í leiknum uppi á skaga og frábær þegar hann kom inná núna. Það var meira það að við ætluðum að verjast í fjögurra manna vörn. Vitandi af ógninni sem Conteh hefur þá vildum við hafa sterkari varnarmann þarna úti. Ég talaði við hann og hann gerði sér grein fyrir því að þetta var taktískt, þetta væri ekkert út á hans frammistöðu."

"Við erum opnir fyrir því að skoða það [að fá fleiri leikmenn til liðsins]. Við ætlum ekki bara að ná í eitthvað. Hópurinn hefur verið að stækka mikið undanfarið þ.e.a.s. yngri leikmenn sem eru að taka frábær skref hjá okkur. Við erum með frábært barna- og unglingastarf og njótum góðs af því. Það er mikilvægt að finna pláss fyrir þessa drengi til að þroskast. Við erum ekki örvæntingarfullir, við erum ekki að ná í bara eitthvað. Við erum að ná í leikmenn sem við teljum að séu að styrkja okkur innan vallar sem utan og komi með eitthvað til borðsins" sagði Ólafur Ingi

Allt viðtalið við Ólaf Inga má finna í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.