Gunnar Heiðar léttur: Töfrar Kórsins
Auglýsing

„Öll tölfræði hefur sýnt að við erum að gera það sem við viljum gera og að við erum klárlega á réttri leið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ótrúlega ánægður með strákana að byrja leikinn frábærlega. Þetta er allt sem við erum búnir að tala um síðustu tvo mánuði," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, eftir stórsigur gegn ÍR.
Lestu um leikinn: HK 5 - 1 ÍR
„Við gerðum þetta virkilega vel. Létum boltann ganga vel og vorum að fara í þessi svæði sem við viljum sækja á. Skorum virkilega góð mörk, ólík mörk en þetta er akkúrat það sem við erum að bjóða uppá. Það eru mikið af ólíkum sóknaraðgerðum sem við erum að fara eftir og mér fannst við gera það virkilega vel í dag," sagði Gunnar.
„Mér finnst vera búinn að vera stígandi í okkar leik. Þetta var okkar besti leikur á tímabilinu og klárlega eitthvað sem við erum búnir að reyna að bæta frá síðustu leikjum. Við gerðum það vel í dag og það er virkilega sterkt að vinna ÍR á þessum stað sem þeir eru á."
Gengi HK hefur veirð afskaplega gott á heimavelli það sem af er móts. Liðið hefur unnið sex leik og gert eitt jafntefli í sjö leikjum í Kórnum.
„Það bara The Magic of Kórinn, það er bara þannig," sagði Gunnar léttur.„Nei, okkur líður vel hérna, við æfum vel hérna og þekkjum hvernig það er að spila hérna. Það er hvergi betra að vera en í Kórnum á svona dögum eins og verið hafa á þessu sumri."