Fotbolti.net
14.07.26 - 21:00
Sverrir Örn Einarsson

Óskar búinn á því: Hefði alveg verið til í skiptingu

Auglýsing
Óskar Borgþórsson

Óskar Borgþórsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var fáklæddur en brosmildur Óskar Borgþórsson sem mætti í viðtal við fulltrúa Fótbolta.net í Györ í kvöld eftir 2-2 jafntefli Víkings við heimamenn í kvöld sem fleytti Víkingum áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar. Óskar var spurður hvort Víkingar hefðu þurft að "suffera" í leiknum.
Lestu um leikinn: ETO Györ 2 - 2 Víkingur R.
„Já við söfferuðum alveg. Börðumst saman sem lið, hlupum fyrir hvern annan og höfðum alltaf trú á þessu, Ég fékk dæmt á mig víti sem var klaufalegt af mér en menn stíga bara upp eftir mistök allir í liðinu og hjálpa hver öðrum og við erum bara lið.“

Óskar bætti um fyrir mistök sín síðar í leiknum þegar hann gerði vel í aðdraganda annars marks Víkings í leiknum. Hann vinnur þá sinn mann og kemur boltanum inn á teiginn og úr verður mark.

„Þetta er bara minn leikur að taka menn á og skila mínu á svona augnablikum á síðasta þriðjungi. Búa til eitthvað, færi fyrir liðsfélaga mína og svona en ég er sáttur með að hafa bætt upp fyrir vítadóminn.“

Þreyta var farinn að setjast að hjá leikmönnum Víkings undir lok leiks og nýtti Sölvi Ottesen þjálfari þeirra allar 5 skiptingar sínar. Var nóg eftir hjá Óskari?

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hefði alveg verið til í skiptingu. Ég var alveg búinn á því. Það var eins og maður væri með tuttugu kíló aftan á sér. En maður hugsar ekkert út í það, maður hugsar bara að klára leikinn, vinna og hjálpa liðinu.“

Framundan hjá Víkingum er einvígi gegn Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael í næstu umferð. Hvernig metur Óskar möguleika Víkings gegn þeim?

„Ég veit náttúrlega ekkert um þá. En ég hef fulla trú á okkur og að við getum strítt þeim líka.“

Sagði Óskar en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.