Fotbolti.net
14.07.26 - 20:45
Gylfi Már Þórðarson

Rúnar Páll: Mér fannst við spila alveg fáránlega vel í dag

Auglýsing
Rúnar Páll Sigmundsson - þjálfari Gróttu

Rúnar Páll Sigmundsson - þjálfari Gróttu

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Lengjudeildin
Heimamenn í Gróttu biðu lægri hlut gegn Grindavík á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í kvöld. Lokatölur urðu 1-2 í miklum rokleik þar sem Gróttumenn voru með yfirhöndina í leiknum án þess þó að nýta færin sín. Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu mætti í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 2 Grindavík
"Við hefðum þurft að nýta eitthvað af þessum færum sem við fengum, við fengum nóg af þeim sem og skotsénsum sem því miður fóru ekki á markið eða í stangirnar. Mér fannst við spila alveg fáránlega vel í dag. Stundum er þetta bara svona, frammistaðan er góð og þú vinnur leiki, frammistaðan er góð og þú tapar leikjum. Það er eitthvað sem við þurfum að læra af. Þannig er fótboltinn, hann er grimmur. Að mörgu leiti er ég mjög ánægður með frammistöðu liðsins og við þurfum að taka með okkur það góða."

"Mér fannst Grindvíkingarnir liggja aftarlega og vörðust vel, og gerðu það bara feykivel. Þeir beita skyndisóknum og reyndu að svæfa okkar leik sem tókst ágætlega í fyrri hálfleik. Þeir skapa sér engin færi nema þeir skora mark fyrir utan teig í fyrri hálfleik sem við hefðum átt að gera betur í í sjálfu sér, það er alltaf þannig. Annars man ég ekki eftir að þeir hafi fengið einhver færi. Við lágum á þeim og vorum með algjöra yfirburði í þessum leik en það kom ekkert út úr því nema reynslan af því og við lærum af þessu." sagði Rúnar Páll

Allt viðtalið við Rúnar Pál má finna hér í spilaranum að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.