Fotbolti.net
14.07.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Man Utd vill annan miðjumann

Man Utd vill annan miðjumann
Canon

Mynd: EPA

Manchester United er í leit að einum miðjumanni í viðbót eftir að hafa keypt Youri Tielemans og Andrey Santos á upphafi sumargluggans.
Tielemans kominn til Manchester (Staðfest)
TENGT EFNI

Tielemans kominn til Manchester (Staðfest)

Rauðu djöflarnir vilja kaupa varnarsinnaðan miðjumann til að fylla í skarðið fyrir Casemiro eftir að brasilíski landsliðsmaðurinn Éderson er talinn hafa fallið á læknisskoðun.

Fabrizio Romano segir litlar líkur á því að Man Utd snúi sér aftur að Éderson síðar í sumar og er því ósammála fréttaflutningi BBC og Sky Sports um málið. Fleiri félög vilja Éderson, sem er einnig með samningstilboð frá Atalanta á borðinu, en hann er ekki talinn vera ánægður með útskýringar United á misheppnuðu félagaskiptunum. Stjórnendur Atalanta eru einnig gapandi hissa á ákvörðun United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.