Fotbolti.net
14.07.26 - 17:54
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Frakklands og Spánar: Deschamps gerir tvær breytingar

Byrjunarlið Frakklands og Spánar: Deschamps gerir tvær breytingar
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarliðin hafa verið tilkynnt fyrir risaslaginn í undanúrslitum heimsmeistaramótsins þar sem Frakkar mæta Spánverjum.
Þetta er þriðji undanúrslitaleikurinn sem þessi lið mætast í á síðustu tveimur árum. Spánn hafði betur í undanúrslitum Evrópumótsins 2024 og aftur í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í fyrra. Frakkar eru hins vegar með ógnarsterkt lið og eru að reyna að tryggja sér þátttökurétt í þriðja úrslitaleik heimsmeistaramótsins í röð, eftir að hafa tapað í Katar 2022 og sigrað í Rússlandi 2018.

Didier Deschamps þjálfari Frakka gerir tvær breytingar frá þægilegum 2-0 sigri gegn Marokkó í 8-liða úrslitum. Aurélien Tchouaméni kemur inn á miðjuna fyrir Manu Koné á meðan Bradley Barcola tekur byrjunarliðssætið úti á vinstri kanti af Désiré Doué, en þeir eru liðsfélagar hjá PSG. Barcola er afar snöggur og beinskeyttur og hentar því vel fyrir skyndisóknabolta á meðan Doué er afar teknískur, leikinn á boltann og góður á þröngum svæðum. Doué er því betri gegn andstæðingum sem liggja mikið aftur.

Luis de la Fuente þjálfari Spánverja mætir til leiks með sama byrjunarlið og lagði Belgíu að velli í 8-liða úrslitum.

Frakkland: Maignan, Kounde, Upamecano, Saliba, Digne, Tchouameni, Rabiot, Dembele, Olise, Barcola, Mbappe.
Varamenn: Samba, Risser, Lacroix, Konate, T.Hernandes, L.Hernandez, Gusto, Zaire-Emery, Kone, Kante, Akliouche, Cherki, Doue, Mateta, Thuram.

Spánn: Simon, Porro, Laporte, Cubarsi, Cucurella, Ruiz, Rodri, Baena, Olmo, Yamal, Oyarzabal.
Varamenn: Raya, J.Garcia, E.Garcia, Pubill, Llorente, Grimaldo, Zubimendi, Merino, Pedri, Gavi, Williams, Torres, Pino, Munoz, Iglesias.
Byrjunarlið Frakklands og Spánar: Deschamps gerir tvær breytingar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.