Meunier stóðst læknisskoðun hjá Sunderland

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Lille

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Belgíski bakvörðurinn Thomas Meunier er búinn að standast læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Sunderland.
Sunderland voru nýliðar í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Langflestir spáðu þeim falli beint aftur niður um deild, en Régis Le Bris þjálfari náði ótrúlegum árangri með liðið.
Sunderland átti magnað tímabil og endaði í sjöunda sæti deildarinnar, sem tryggði liðinu þátttökurétt í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á komandi leiktíð. Meunier er fenginn til að bæta mikilvægri reynslu við hópinn.
Meunier, sem verður 35 ára í september, gerir tveggja ára samning við Sunderland.
Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa verið samherji Hákons Arnars Haraldssonar hjá Lille á síðustu leiktíð, en þar áður lék hann meðal annars fyrir Paris Saint-Germain og Borussia Dortmund.
Meunier var partur af landsliðshópi Belgíu sem komst í 8-liða úrslit á heimsmeistaramótinu og á í heildina 83 landsleiki að baki.