Fotbolti.net
14.07.26 - 11:52
Elvar Geir Magnússon

Maður dagsins á HM - Litli bróðir Yamal stelur senunni

Lamine Yamal og Keyne að 'ulla'.

Lamine Yamal og Keyne að 'ulla'.

Canon

Mynd: EPA/Samsett

Leikmaður dagsins
Vinsælasti stuðningsmaður spænska landsliðsins er hinn þriggja ára gamli Keyne, bróðir stórstjörnunnar Lamine Yamal, en hann hefur stolið senunni á HM þar sem hann er í góðum gír.

Hann hefur notið feikilegra vinsælda á samfélagsmiðlum og hefur notið sín fyrir framan sjónvarpsmyndavélarnar. Myndskeið þar sem hann sést dansa í stúkunni, gefa fingurkossa og gretta sig hafa slegið í gegn.

Þessi hressi strákur var í sviðsljósinu í kringum sigur Spánverja á Belgum á föstudaginn og var honum varpað á risaskjá á vellinum. Á vellinum sást Lamine Yamal hlæjandi að litla bróður.
„Daginn fyrir leik var ég hjá sjúkraþjálfurunum og hann hringdi í mig í gegnum síma mömmu okkar og sagði mér að hann ætlaði að reka tunguna út á vellinum. Ég fór þess vegna að skellihlæja þegar ég sá hann á skjánum," segir Lamine Yamal.

Bræðurnir eru mjög nánir og athygli vakti á EM 2024 þegar Keyne fagnaði með stóra bróður á vellinum eftir að Spánn vann mótið. Þeir voru síðan saman á Ballon d’Or verðlaunahátíðinni í París.

Yamal hefur oft talað fallega um litla bróður sinn en þeir eru sammæðra en eiga sitthvoran föðurinn eftir að leiðir foreldra hans skildu þegar hann var ungur. - „Litli bróðir minn skiptir mig öllu máli. Mér þykir gríðarlega vænt um hann, eins og hann sé minn eigin sonur," sagði Yamal við fjölmiðla í vikunni. Fjölskyldan hefur staðið náið með Yamal í gegnum uppgang hans á ferlinum.

Spánn mætir Frakklandi í undanúrslitum HM klukkan 19 í kvöld. Keyne verður pottþétt í stúkunni!




Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Bræðurnir eftir sigur Spánar á EM 2024.

Bræðurnir eftir sigur Spánar á EM 2024.

Canon

Mynd: EPA

Á gullboltahátíðinni 2024.

Á gullboltahátíðinni 2024.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.