PSG framlengir við Nike til 2037 - Einn stærsti samningur sögunnar

PSG verður áfram með Nike og eina félagið sem leikur í treyjum úr Jordan-vörumerkinu

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru að ganga frá samningum við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike, en nýr samningur mun gilda til 2037.
PSG og Nike hafa gengið í gegnum súrt og sætt saman, en franska félagið hefur leikið í búningum frá íþróttavörurisanum frá árinu 1989.
Núgildandi samningur PSG við Nike rennur út árið 2032, en viðræður um framlengingu hófust á síðasta ári þegar liðið vann Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins.
PSG fær um 60 milljónir evra á ári samkvæmt núverandi samningi, en L'Equipe segir að samkomulag hafi náðst um nýjan samning. Samkvæmt honum mun félagið fá um 100 milljónir evra á ári og verður hann einn sá stærsti sinnar tegundar í fótboltaheiminum.
Samningurinn verður svipaður þeim sem Barcelona gerði við Nike árið 2024. Spænska félagið skrifaði þá undir fjórtán ára samning sem tryggir því að meðaltali um 121 milljón evra á ári.
PSG verður áfram eina félagið sem leikur í Jordan-línunni, sem er í eigu Nike. Samstarfið hefur reynst félaginu afar verðmætt og aukið tekjur þess af sölu á varningi.
Vörumerki PSG varð fyrir nokkurri niðursveiflu eftir brottfarir Neymars, Kylian Mbappe og Lionel Messi, en virðist nú vera komið á skrið á nýjan leik, ekki síst vegna frábærs árangurs liðsins í Meistaradeildinni.