Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. ágúst 2019 17:03
Elvar Geir Magnússon
Kaplakrika
Byrjunarlið FH og KR: Kristján Flóki á bekknum
Guðmann ekki með FH
Tobias Thomsen byrjar.
Tobias Thomsen byrjar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmann Þórisson er ekki með.
Guðmann Þórisson er ekki með.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Það er safaríkur undanúrsleikur framundan á hinum frábæra Kaplakrikavelli þar sem FH tekur á móti KR í Mjólkurbikarnum. Leikurinn hefst klukkan 18:00.

Tveir risar sem eru að fara að kljást um sæti í úrslitaleiknum sjálfum. Úrslitaleikurinn verður 14. september.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Hjá FH vekur athygli að Guðmann Þórisson er ekki í leikmannahópnum. Þórður Þorsteinn, Kristinn Steindórs og Jónatan Ingi fara líka úr liðinu frá sigrinum gegn Val.

Inn koma Cedric D'Ulivo, Atli Guðna, Guðmundur Kristjánsson og Brandur Olsen.

Arnþór Ingi Kristinsson kemur aftur inn í liðið hjá KR og þá vann Tobias Thomsen samkeppnina við Kristján Flóka Finnbogason um byrjunarliðssæti.

Byrjunarlið FH:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
3. Cédric D'Ulivo
4. Pétur Viðarsson
5. Hjörtur Logi Valgarðsson
6. Björn Daníel Sverrisson
7. Steven Lennon
10. Davíð Þór Viðarsson (f)
11. Atli Guðnason
14. Morten Beck Guldsmed
16. Guðmundur Kristjánsson
27. Brandur Olsen

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
16. Pablo Punyed
19. Kristinn Jónsson
20. Tobias Thomsen
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
25. Finnur Tómas Pálmason

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Athugasemdir
banner
banner