Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að leikur Vals og ÍA í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla verði næsta þriðjudag, 18. ágúst.
Þetta er eini leikurinn sem er eftir í 16-liða úrslitum en hann átti að vera í lok júlímánaðar. Honum var frestað eftir að fótboltinn var stöðvaður vegna Covid-19.
Sigurliðið mun mæta HK á heimavelli í 8-liða úrslitum en hér má sjá hvernig drátturinn fór.
Til að koma þessum leik Vals og ÍA fyrir voru tveir leikir í Pepsi Max-deild karla færðir til.

Eftirfarandi leikjum hefur verið breytt:
Mjólkurbikar karla
Valur - ÍA
Var: Föstudaginn 31. júlí kl. 19.15 á Origo vellinum
Verður: Þriðjudaginn 18. ágúst kl. 19.15 á Origo vellinum
Pepsi Max deild karla
KA - ÍA
Var: Föstudaginn 21. ágúst kl. 18.00 á Greifavellinum
Verður: Laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00 á Greifavellinum
Pepsi Max deild karla
Stjarnan - KA
Var: Þriðjudaginn 25. ágúst kl. 18.00 á Samsungvellinum
Verður: Miðvikudaginn 26. ágúst kl. 18.00 á Samsungvellinum
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir