Everton og Fulham hafa ákveðið að blanda sér í baráttuna um Antonee Robinson, vinstri bakvörð Wigan.
Wigan samþykkti tveggja milljóna punda tilboð frá Sheffield United í Robinson á dögunum en nú eru fleiri félög í myndinni.
Everton er í leit að öðrum vinstri bakverði eftir að Leighton Baines lagði skóna á hilluna. Lucas Digne er númer eitt í röðinni hjá Everton og Robinson gæti átt erfitt með að ná byrjunarliðssæti þar.

Wigan þarf að selja leikmenn vegna fjárhagsvandræða en félagið féll niður í ensku C-deildina á dögunum.
Robinson fer því annað en það ætti að skýrast á næstu dögum hver áfangastaður hans verður.
Athugasemdir