Fotbolti.net
27.09.26 - 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þjóðadeildin: Öruggur sigur hjá Írum - Þjóðverjar töpuðu

Dýrkeypt mistök hjá Nyland

Troy Parrott

Troy Parrott

Canon

Mynd: EPA

Noregur fékk Portúgal í heimsókn í 2. umferð Þjóðadeildarinnar í kvöld. Noregur vann Dannmörk í fyrstu umferð og Portúgal vann Wales.

Joao Neves kom Portúgal yfir þegar hann skoraði með skoti úr D-boganum. Noregur jafnaði metin snemma í seinni hálfleik. Martin Ödegaard tók aukaspyrnu sem Diogo Costa varði út í teiginn, Patrick Berg kom boltanum á Erling Haaland sem skoraði af stuttu færi.
Portúgal komst aftur yfir stuttu síðar eftir skelfileg mistök Orjan Nyland í marki Noregs. Hann átti sendingu sem fór beint á Goncalo Ramos sem þakkaði fyrir sig og vippaði yfir hann og boltinn endaði í netinu.

Nyland var heppinn að Portúgal náði ekki tveggja marka forystu. Hann hitti ekki boltann þegar hann ætlaði að hreinsa frá og Ramos náði boltanum og skoraði. Markið var hins vegar dæmt af þar sem Pedro Neto var í rangstöðu í aðdragandanum.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð og sigur Portúgal staðreynd.

Jurgen Klopp stýrði Þýskalandi í annað sinn í kvöld þegar liðið fékk Grikkland í heimsókn. Þýskaland gerði jafntefli gegn Hollandi í fyrstu umferð en Grikkland vann Slóveníu.

Þjóðverjar voru betri aðilinn en Dimitrios Kourbelis reyndist hetja Grikkja þegar hann skoraði með skoti úr teignum.

Mikið hefur verið rætt og ritað um leik Ísraels og Írlands. Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í Írlandi spiluðu með sorgarbönd til stuðnings fórnarlömbum á Gaza.

Þá neituðu írsku leikmennirnir að taka í höndina á þeim ísraelsku fyrir leikinn og horfðu niður þegar þjóðsöngur Ísraels var spilaður.

Írland vann öruggan sigur að lokum. Troy Parrott kom Írlandi yfir á 14. mínútu og Adam Idah bætti öðru markinu við tveimur mínútum síðar. Það var svo Jack Moylan sem innsiglaði sigurinn á 25. mínútu.

Írland er með þrjú stig en Ísrael án stiga í riðli þrjú í B-deild.

Þýskaland 0 - 1 Grikkland
0-1 Dimitrios Kourbelis ('74 )

Noregur 1 - 2 Portúgal
0-1 Joao Felix ('17 )
1-1 Erling Haaland ('51 )
1-2 Goncalo Ramos ('54 )

Ísrael 0 - 3 Írland
0-1 Troy Parrott ('13 )
0-2 Adam Idah ('16 )
0-3 Jack Moylan ('25 )
Þjóðadeildin: Öruggur sigur hjá Írum - Þjóðverjar töpuðu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.