Fotbolti.net
14.09.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Liverpool leitar að fimmta sigrinum í röð

England í dag - Liverpool leitar að fimmta sigrinum í röð
Canon

Mynd: Getty Images

Enski boltinn byrjar að rúlla aftur eftir landsleikjahlé í hádeginu í dag og eru þrír leikir sýndir beint hjá Símanum.
Fyrsti leikur dagsins fer fram í Liverpool þar sem lærisveinar Jürgen Klopp taka á móti Newcastle. Heimamenn hafa farið vel af stað og eru með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir á meðan Newcastle er með fjögur stig, eftir frækinn sigur á Tottenham Hotspur Stadium í lok ágúst.

Manchester United hefur farið illa af stað og er með fimm stig. Liðið tekur á móti Leicester City í stórleik dagsins, en Leicester er í þriðja sæti með átta stig.

Chelsea og Tottenham eru jöfn Man Utd á stigum og eiga leiki við Wolves og Crystal Palace.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley heimsækja Brighton og nýliðar Sheffield United taka á móti Southampton.

Síðasti leikur dagsins er á milli Norwich og Englandsmeistara Manchester City. Teemu Pukki, finnskur sóknarmaður Norwich, var valinn besti leikmaður ágúst mánaðar enda skoraði hann fimm mörk í fjórum leikjum. Þrír af þessum leikjum enduðu með tapi.

Sergio Agüero er þó kominn með sex mörk.

Leikir dagsins:
11:30 Liverpool - Newcastle (Síminn Sport)
14:00 Man Utd - Leicester (Sjónvarp Símans)
14.00 Wolves - Chelsea
14:00 Tottenham - Crystal Palace
14:00 Brighton - Burnley
14:00 Sheffield Utd - Southampton
16:30 Norwich - Man City (Síminn Sport)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.