„Svona er fótboltinn. Þetta var ekki venjulegur leikur, en við verðum að líta fram á veginn," sagði miðjumaðurinn Rodri eftir 3-2 tap Manchester City gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni.
Rodri skoraði annað mark Man City á 88. mínútu en það var of lítið, of seint.
„Tímabilið er langt, það verða leikir eins og þessir - að minnsta kosti tveir eða þrír."
„Við erum ekki upp á tíu sem lið, við erum ekki fullkomnir. Það eina jákvæða sem við getum sagt er að tímabilið er ungt. Við erum fimm stigum frá Liverpool, en við verðum að halda áfram."
Athugasemdir