Fotbolti.net
14.09.19 - 13:57
Ívan Guðjón Baldursson

Svíþjóð: Edgren skoraði fernu fyrir Kristianstad

Svíþjóð: Edgren skoraði fernu fyrir Kristianstad
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Kvennaboltinn
<b>Kristianstad 5 - 0 Kungsbacka</b>
1-0 Amanda Edgren ('22)
2-0 Amanda Edgren ('31)
3-0 Rita Chikwelu ('69)
4-0 Amanda Edgren ('75)
5-0 Amanda Edgren ('85)
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn er Kristianstad valtaði yfir Kungsbacka í efstu deild sænska boltans.

Amanda Edgren lék á alls oddi og skoraði fernu í 5-0 sigri. Kungsbacka vermir botnsæti deildarinnar, með fjögur stig eftir sautján umferðir.

Svava Rós var eini Íslendingurinn í hóp Kristianstad og er liðið í þriðja sæti deildarinnar. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð en topplið Rosengård er með fjögurra stiga forystu og leik til góða.

Meppen 6 - 1 Kaiserslautern

Í þýsku B-deildinni var Andir Rúnar Bjarnason ekki í hóp er Kaiserslautern steinlá fyrir Meppen.

Andri hefur ekki verið í hóp hjá Kaiserslautern undanfarnar vikur og er liðið komið með níu stig eftir átta umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.