Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 19. september 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Treyja Arons Einars á 1000 krónur - Nálgast tvær milljónir
Mynd: Eyþór Árnason
Framtak íslensks atvinnufólks í knattspyrnu og körfubolta í samstarfi við Charity Shirts hefur vakið mikla lukku og hafa næstum því tvær milljónir safnast til góðgerðarmála.

Nú leggur landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson samtökunum lið og reynir að fara með töluna yfir tvær milljónir. Aron Einar er með áritaða Íslenska Landsliðstreyju á lottó uppboði.

Allur ágóði mun skiptast á milli Minningarsjóðs Baldvins Rúnarssonar og félagi langveikra barna á Norðurlandi - Hetjurnar.

Kostar aðeins 1000kr miðinn og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu CharityShirts. Vinningshafi verður dreginn út mánudaginn 23 september kl 19:00.

Athugasemdir
banner
banner
banner