Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Alisson klár gegn Manchester United
Mynd: Getty Images
Alisson, markvörður Liverpool, er klár í slaginn fyrir leik liðsins gegn Manchester United á sunnudag.

Alisson hefur verið frá keppni síðan hann meiddist gegn Norwich í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Níu vikur eru liðnar síðan þá og Brasilíumaðurinn er nú klár í endurkomu.

Alisson hefur verið í sérstökum æfingum undanfarna daga og hann er klár í að snúa til baka í markið.

Spænski markvörðurinn Adrian hefur staðið vaktina hjá Liverpool hingað til á tímabilinu en hann hefur sýnt fína takta á milli stanganna.

Mohamed Salah ætti einnig að ná leiknum gegn United á sunnudag en hann er að jafna sig af ökklameiðslunum sem hann varð fyrir gegn Leicester um þarsíðustu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner