Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 14. október 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Bale og Modric meiddust í gær - Áhyggjuefni fyrir Real Madrid
Gareth Bale og Luka Modric í baráttunni
Gareth Bale og Luka Modric í baráttunni
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Madrid bíður eftir fregnum af þeim Gareth Bale og Luka Modric en báðir meiddust í lok leiks er Wales og Króatía gerðu 1-1 jafntefli.

Modric og Bale hafa verið mikilvægir í liði Real Madrid síðustu ár en Bale er kominn með 2 mörk og 2 stoðsendingar í 7 leikjum á þessu tímabili á meðan Modric hefur spilað 5 leiki, skorað 1 mark og lagt upp 1.

Modric meiddist er hann fór í tæklingu á Harry Wilson og þurfti að fara af velli á meðan Gareth Bale neyddist til að klára leikinn þar sem Wales var búið með skiptingarnar.

„Bale fékk krampa og vildi ekki koma útaf. Það var leiðinlegt fyrir hann að spila með krampann síðustu tíu mínúturnar því það var eins og við værum manni færri," sagði Giggs.

„Modric fékk sársaukafullt högg og þurfti að koma af velli en hann þarf að hvíla næstu 2-3 daga og vonandi verður í lagi með hann," sagði Zlatko Dalic, þjálfari Króatíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner