Real Madrid ætlar sér að fá spænska miðjumanninn Fabian Ruiz frá Napoli í janúar.
Fabian er 23 ára gamall og kom til Napoli frá Real Betis á síðasta ári og tókst að heilla á fyrsta tímabili sínu þar.
Hann hefur verið öflugur í byrjun leiktíðar með Napoli en Barcelona og Real Madrid hafa mikinn áhuga á að fá hann aftur til Spánar.
Fabian er einnig búinn að festa hlutverk sitt í byrjunarliði spænska landsliðsins en Real Madrid vill kaupa hann í janúar.
Talið er að Napoli ætli sér ekki að selja hann á miðju tímabili og þá sérstaklega eftir að viðræður félagsins við Real Madrid um James Rodriguez slitnuðu í sumar.
Athugasemdir