Íslenska landsliðið er komið yfir gegn Andorra í undankeppni Evrópumótsins en Arnór Sigurðsson skoraði markið.
Guðlaugur Victor Pálsson átti sendingu á Kolbein sem skallaði hann á fjærstöngina og þar var Arnór mættur til að koma knettinum yfir línuna.
Þetta er fyrsta mark Arnórs fyrir A-landsliðið.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Arnór Sigurðsson er búinn að koma Íslandi 1-0 yfir á móti Andorra. Fyrsta landsliðsmark Skagamannsins. #ISLAND pic.twitter.com/IVhFqbCZ85
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 14, 2019
Athugasemdir