14.10.26 - 10:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Sá sem hefur áhuga þarf að berjast við mig

Jose Mourinho.

Mynd: EPA

Endrick.

Mynd: EPA

Jose Mourinho.

Mynd: EPA
José Mourinho, stjóri Real Madrid, hefur útilokað að brasilíski framherjinn Endrick verði lánaður frá félaginu í janúar.
Endrick, sem er tvítugur, hefur fengið afar fá tækifæri á tímabilinu og hefur aðeins spilað fjórar mínútur í einum leik. Sögusagnir hafa því verið á kreiki um að hann gæti farið á láni í janúar, en hann lék með Lyon á síðari hluta síðasta tímabils.

„Nei, nei, gleymið því. Ef einhver félög bíða eftir honum ættu þau að setjast niður, því þau verða þreytt á að bíða standandi,“ sagði Mourinho í samtali við TNT Sports Brazil.
Mourinho sagðist jafnframt hafa mikla trú á Endrick og telji hann geta náð langt hjá Real Madrid.
„Ég dýrka Endrick. Ég trúi því að hann hafi gríðarlega mikla hæfileika og sé mjög mikilvægur fyrir okkur,“ sagði Mourinho og bætti við:
„Sá sem hefur áhuga þarf að berjast við mig. Ég tel að hann þurfi ekki að fara á láni."
Endrick gekk til liðs við Real Madrid árið 2024 og hefur verið orðaður við brottför eftir að hafa átt erfitt með að vinna sér fast sæti í liðinu. Mourinho virðist þó ekki ætla að gefa eftir og telur að framherjinn eigi framtíðina fyrir sér í spænsku höfuðborginni.