Fotbolti.net
14.12.19 - 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Lampard: Vissi að það myndu koma erfiðir tímar

Það gengur ekki vel hjá Lampard þessa dagana.

Það gengur ekki vel hjá Lampard þessa dagana.

Canon

Mynd: Getty Images

Gengi Frank Lampard og lærisveina hans í Chelsea hefur heldur dalað undanfarnar vikur, af síðustu fimm deildarleikjum hefur Chelsea aðeins unnið einn þeirra.
Í dag tók Chelsea á móti Bournemouth á Stamford Bridge, þar höfðu gestirnir betur 0-1 með marki sem kom undir lok leiksins.

„Við erum í fjórða sæti núna og ég held að hefði einhver boðið okkur það fyrir tímabilið hefðum við tekið það, það voru ekki miklar væntingar gerðar til okkar fyrir tímabilið."

„Fyrir leikinn gegn Manchester City fyrir nokkrum vikum síðan vorum við að horfa upp á við, núna þurfum við hins vegar að vakna og fara ná í úrslit aftur."

„Þetta var alltaf að fara gerast, ég vissi að það myndu koma erfiðir tímar líka," sagði Lampard eftir tapði gegn Bournemouth.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.