Fotbolti.net
15.01.20 - 12:17
Elvar Geir Magnússon

Inter að klára kaupin á Giroud

Olivier Giroud er 33 ára sóknarmaður.

Olivier Giroud er 33 ára sóknarmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fréttir frá Frakklandi herma að umboðsmaður Olivier Giroud verði í Mílanó á morgun en Inter er að ganga frá kaupum á sóknarmanninum frá Chelsea.

Sky Sport Italia segir að allt sé tilbúið fyrir læknisskoðun leikmannsins sem muni gera tveggja og hálfs árs samning.
Sagt er að kaupverðið sé í kringum 5 milljónir evra.

Sóknarleikmaðurinn Matteo Politano er að yfirgefa Inter og ganga í raðir Roma í skiptidíl. Inter fær vængmanninn Leonardo Spinazzola.

Inter er í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar, tveimur stigum á eftir meisturunum í Juventus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.