Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 15. janúar 2021 22:04
Victor Pálsson
Lampard veit að Werner vill spila fyrir miðju
Mynd: Getty Images
Timo Werner, framherji Chelsea, vill frekar spila fyrir miðju í sóknarlínu liðsins frekar en á vinstri væng að sögn Frank Lampard, stjóra liðsins.

Werner hefur þurft að spila vinstra megin oft og mörgum sinnum á tímabilinu en hann endaði 12 leikja markaþurrð í bikarnum gegn Morecambe um síðustu helgi.

Lampard veit hver uppáhalds staða Werner er en telur að hann geti leyst ýmsar stöður í fremstu víglínu.

„Augljóslega þá vill Timo byrja fyrir miðju. Hann hefur spilað fyrir miðju, vinstra megin, einn frammi og með samherja upp á topp svo það er mikill sveigjanleiki með Timo," sagði Lampard.

„Við erum vinnusamir án bolta í þessu liði og það þýðir mikil hápressa. Það er eðlilegt að það taki tíma fyrir Timo og aðra sóknarmenn að aðlagast mínum hugmyndum og hugmyndum liðsfélaga."

„Við höfum ekki haft tíma á æfingasvæðinu fyrir það. Síðustu tvær vikur hafa því hjálpað okkur mikið."

Athugasemdir
banner
banner
banner