Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. janúar 2021 21:23
Victor Pálsson
Þýskaland: Sterkur sigur Union Berlin á Leverkusen
Mynd: Getty Images
Union Berlin 1 - 0 Leverkusen
1-0 Cedric Teuchert('89)

Union Berlin vann virkilega sterkan sigur í þýsku Bundesligunni í kvöld er liðið mætti Bayer Leverkusen í föstudagsleik deildarinnar.

Union hefur komið mörgum á óvart á tímabilinu og eftir 1-0 sigur í kvöld er liðið aðeins fimm stigum frá toppliði Bayern Munchen.

Leverkusen var fjórum stigum á undan Union fyrir viðureignina en það síðarnefnda lyfti sér upp í fjórða sætið og er jafnt stigum Borussia Dortmund.

Cedric Teuchert reyndist hetja Union í sigrinum en hann gerði eina markið þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma.

Leverkusen hefur verið í basli í síðustu leikjum og hefur ekki tekist að vinna í síðustu fjórum umferðum þar sem þrjú töp voru á boðstólnum ásamt einu jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner