Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 15. febrúar 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sex ungir skrifa undir hjá Þrótti R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sex ungir Þróttarar eru búnir að skrifa undir samninga við knattspyrnudeild félagsins sem gilda út keppnistímabilið 2021.

Albert Elí Vigfússon, Arnaldur Ásgeir Einarsson, Brynjar Gautur Harðarson, Daníel Karl Þrastarson, Emil Skúli Einarsson og Kári Kristjánsson heita strákarnir.

Allir eru þeir fæddir 2004 nema Emil Skúli sem er fæddur ári fyrr.

Enginn þeirra hefur spilað keppnisleik með meistaraflokki en þeir hafa verið að taka þátt í hæfileikamótun KSÍ og landsliðsúrtökum.

„Það er yfirlýst stefna Þróttar að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri til að þróast sem einstaklingar og leikmenn innan félagsins og slíkum samningnum er ætlað að setja ákveðnar skyldur á báða aðila sem fylgst verður með að verði uppfylltar," segir í yfirlýsingu frá Þrótti.

„Vel er fylgst með fleiri leikmönnum, bæði stúlkum og drengjum, og framförum þeirra og þróun innan félagsins og má vænta gerð fleiri slíkra samninga við unga leikmenn Þróttar á næstu mánuðum."
Athugasemdir
banner
banner
banner