Fotbolti.net
15.02.20 - 14:32
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Matty Cash stöðvaði sigurgöngu WBA

Matty Cash var að skora sitt þriðja mark á deildartímabilinu.

Matty Cash var að skora sitt þriðja mark á deildartímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

West Brom 2 - 2 Nottingham Forest
1-0 Callum Robinson ('37)
1-1 Kyle Bartley ('45, sjálfsmark)
2-1 Tobias Figueiredo ('65, sjálfsmark)
2-2 Matty Cash ('91)
Nottingham Forest tókst að stöðva sigurgöngu West Bromwich Albion í hörkuleik í dag. Topplið West Brom hafði unnið þrjá deildarleiki í röð og gat komist í níu stiga forystu með sigri.

Callum Robinson skoraði fyrsta mark leiksins en gestirnir náðu að jafna fyrir leikhlé, með sjálfsmarki. Í seinni hálfleik komust heimamenn svo yfir á nýjan leik með öðru sjálfsmarki og verðskulduðu þeir forystuna.

Þegar sigurinn virtist vera í höfn náði Matty Cash, sem var eftirsóttur af West Ham í janúar, að pota inn jöfnunarmarki. Cash jafnaði í uppbótartíma, með öðru skoti Nottingham sem hæfði markrammann.

West Brom er með sjö stiga forystu á toppi Championship deildarinnar.
Leeds og Fulham eiga leik til góða. Nottingham er í fjórða sæti, átta stigum frá toppnum.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.