Grimsby 0 - 1 Wolves
0-1 Santiago Bueno ('60 )
0-1 Santiago Bueno ('60 )
Wolves er komið í fimmtu umferð enska bikarsins eftir 1-0 sigur á D-deildarliði Grimsby Town á Blundell Park í dag.
Grimsby var án Jasonar Daða Svanþórssonar sem er væntanlegur aftur á völlinn í næsta mánuði.
Vallaraðstæður voru erfiðar og spilaði það stóra rullu í leiknum.
Úlfarnir þurftu að gera það besta úr aðstæðunum og náðu á endanum góðu sigurmarkið á 60. mínútu er Joao Gomes kom með fyrirgjöf inn á teiginn á Santiago Bueno sem skaut boltanum í netið.
Gestirnir reyndu að gera endanlega út um leikinn á síðasta kaflanum, en náðu ekki að bæta við.
Á síðustu mínútunum gerðu Grimsby-menn sig líklega til þess að jafna. Andy Cook átti skalla sem fór beint á Sam Johnstone í markinu og þá kom Bueno Úlfunum til bjargar með laglegri tæklingu á lokamínútunni.
Baráttusigur hjá Úlfunum sem hafa átt erfitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni, en þeir eru komnir í fimmtu umferð bikarsins og gera sér vonir um öskubusku ævintýri í bikarnum.
Athugasemdir





