Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 14:47
Brynjar Ingi Erluson
Enski bikarinn: Leeds áfram eftir vítakeppni
Lucas Perri átti frábæran leik hjá Leeds
Lucas Perri átti frábæran leik hjá Leeds
Mynd: EPA
Glæsimark Patrick Roberts dugði ekki Birmingham
Glæsimark Patrick Roberts dugði ekki Birmingham
Mynd: Birmingham City
Birmingham 1 - 1 Leeds (2-4 eftir vítakeppni)
0-1 Lukas Nmecha ('49 )
1-1 Patrick Roberts ('89 )

Leeds United er komið áfram í 5. umferð ensku bikarkeppninnar eftir að hafa unnið Birmingham City í vítaspyrnukeppni á St. Andrew's-leikvanginum í Birmingham í dag.

Heimamenn í Birmingham mættu vel stemmdir og áttu sjö tilraunir á fyrstu tuttugu mínútunum. Brasilíski markvörðurinn Lucas Perri varði frábærlega frá Jay Stansfield og í tréverkið.

Leedsarar voru í raun stálheppnir að vera ekki undir þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Það lifnaði aðeins yfir gestunum í þeim síðari. Lukas Nmecha dansaði með boltann rétt fyrir utan teiginn og setti fast skot í vinstra hornið, en Birmingham lét mótlætið ekki stöðva sig.

Undir lok leiksins skoraði Patrick Roberts stórfenglegt mark með flottu skoti fyrir utan teig. Ibrahim Osman gat síðan sent liðið áfram en tilraun hans hafnaði í stöng og þá náði Kanya Fujimota ekki að nýta frákastið.

Framlenging var það en það var ekkert skorað þar og niðurstaðan því vítakeppni og sú fyrsta þessa helgina.

Þar hafði Leeds betur, 4-2. Lucas Perri varði eina spyrnu og þá skaut Patrick Roberts yfir markið. Hetjuleg barátta hjá Birmingham, en ekki nóg gegn úrvalsdeildarliði Leeds sem er komið áfram.

Vítakeppnin:
1-0 Jay Stansfield
1-1 Joel Piroe
2-1 Marvin Ducksch
2-2 Dominic Calvert-Lewin
2-2 Lucas Perri ver frá Thomas Doyle
2-3 Brenden Aaronson
2-3 Patrick Roberts klúðrar
2-4 Sean Longstaff
Athugasemdir
banner