Fotbolti.net
15.02.26 - 13:50
Brynjar Ingi Erluson
LiveyÍtalski boltinn

Fyrrum forsætisráðherra Ítalíu: Bastoni á ekki að vera í landsliðinu

Alessandro Bastoni

Alessandro Bastoni

Canon

Mynd: EPA

Enrico Letta, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, hefur tekið afstöðu í hinu umdeilda atviki sem átti sér stað í leik Inter og Juventus í Seríu A á Ítalíu í gær.
Sjáðu atvikið: Fiskaði Kalulu útaf
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið: Fiskaði Kalulu útaf

Letta gegndi embætti forsætisráðherra í tæpt ár frá 2013 til 2014, en síðar varð hann leiðtogi demókrataflokksins á Ítalíu.

Hann tjáði sig á X um rauða spjaldið sem Pierre Kalulu fékk í leiknum gegn Inter í gær.

Alessandro Bastoni, varnarmaður Inter, lék þar á dómarann með því að fleygja sér í grasið án snertingar og uppskar Kalulu seinna gula spjaldið. Ekki var hægt að skoða atvikið í VAR þar sem þetta var ekki beint rautt og stóð því ákvörðun vallardómara.

Allt var á suðupunkti í hálfleik þar sem menn tókust á og hrópuðu stjórnarmenn Juventus í átt að Federico La Penna, dómara leiksins.

Letta hefur nú komið sínum sjónarmiðum á framfæri en hann segir að Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari ítalska landsliðsins, eigi að líta framhjá Bastoni þegar hann velur landsliðið fyrir marsverkefnið.

„Það á ekki að kalla Bastoni í landsliðið,“ sagði Letta á X.

Það er ólíklegt að hann fái ósk sína uppfyllta enda er Bastoni með bestu varnarmönnum ítalska boltans og gríðarlega mikilvægur fyrir landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.