Stærstu félögin á Englandi koma fyrir í Powerade-slúðurpakka dagsins, en Liverpool er farið að skoða mögulegan arftaka Mohamed Salah sem gæti yfirgefið félagið í sumar.
Liverpool leiðir kapphlaupið við Arsenal og Manchester City um Anthony Gordon (24), vængmann Newcastle United, en enski landsliðsmaðurinn mun kosta um 95 milljónir punda. (CaughtOffside)
Þessar fregnir koma í ljósi þess að Mohamed Salah (33) virðist vera á förum frá Liverpool eftir tímabilið. Sádi-arabíska deildin ætlar að reyna landa egypska leikmanninum. (Teamtalk)
Liverpool er einnig í baráttunni við Manchester United um hinn 18 ára gamla Mateus Mane sem hefur verið að heilla með Wolves. Hann er verðmetinn á um 50 milljónir punda. (Fichajes)
Tottenham hafnaði fyrirspurnum frá Aston Villa og Chelsea í síðasta mánuði vegna sænska miðjumannsins Lucas Bergvall (20). (Athletic)
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill ólmur fá franska miðvörðinn Castello Lukeba (23) frá Leipzig, en þýska félagið er reiðubúið að selja hann fyrir 52,1 milljón punda. (Teamtalk)
Arsenal er einnig skoða Antonio Nusa (20), vængmann Leipzig og norska landsliðsins. Hann er falur fyrir 43 til 52 milljónir punda. (Fussball Daten)
Aston Villa ætlar að reyna að fá James Trafford (23), markvörð Manchester City í stað Emiliano Martínez ef sá síðarnefndi ákveður að fara frá félaginu í sumar. (Football Insider)
Njósnarar Man Utd voru á San Síró í gær til að fylgjast með hinum 28 ára gamla Federico Dimarco hjá Inter og franska miðvörðinn Pierre Kalulu (25) sem er á mála hjá Juventus. (Calciomercato)
Marco Rossi, þjálfari ungverska landsliðsins, segir Dominik Szoboszlai, leikmann Liverpool, dreyma um það að spila fyrir Real Madrid. (Marca)
Enzo Maresca er talinn líklegastur til að taka við Manchester City þegar Pep Guardiola hættir. Maresca hefur ekki rætt við Tottenham um stjórastöðuna eftir að Thomas Frank var látinn fara. (Fabrizio Romano)
Athugasemdir



