Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sigdís Eva gerði sigurmarkið - Hildur mætti Atlético
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hin 19 ára gamla Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn af bekknum og skoraði sigurmark Norrköping í sænska bikarnum í dag.

Norrköping lagði Alingsås að velli þökk sé sigurmarki Sigdísar sem kom á 86. mínútu. Lokatölur 2-1.

Liðin áttust við í fyrstu umferð riðlakeppninnar en Djurgården og Brommapojkarna eru líka með í riðlinum.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, sem er 18 ára, kom þá inn af bekknum í tapi PEC Zwolle í hollensku toppbaráttunni.

Zwolle tapaði fyrir PSV Eindhoven og er í fimmta sæti, með 27 stig eftir 14 umferðir. Níu stigum á eftir toppliði Twente og þremur stigum frá evrópusæti.

Að lokum var Hildur Antonsdóttir í byrjunarliðinu hjá Madrid CFF í nágrannaslag gegn Atlético Madrid í efstu deild á Spáni.

Hildur lék allan leikinn á miðjunni er Madrid náði fræknu jafntefli á erfiðum útivelli. Lokatölur urðu 0-0 og er stigið afar kærkomið fyrir Madrídinga sem höfðu tapað fjórum leikjum í röð í öllum keppnum fyrir daginn í dag.

Madrid er um miðja deild með 27 stig eftir 20 umferðir, fimm stigum á eftir Atlético.

Norrköping 2 - 1 Alingsås
1-0 J. Karlernas ('14, víti)
1-1 I. Svanström ('77)
2-1 Sigdís Eva Bárðardóttir ('86)

PSV Eindhoven 3 - 0 PEC Zwolle
1-0 C. Ripa ('51)
2-0 R. Xhemaili ('59)
3-0 S. van de Sanden ('93)

Atletico Madrid 0 - 0 Madrid CFF
Athugasemdir
banner