15.04.15 - 11:33
Magnús Már Einarsson
Klopp hættir hjá Dortmund í sumar (Staðfest)

Jurgen Klopp.

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp.

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund staðfesti á fréttamannafundi nú rétt í þessu að Jurgen Klopp muni hætta sem þjálfari liðsins í sumar.
Klopp var samningsbundinn til ársins 2018 en hann hefur óskað eftir því að hætta í sumar.

Yfirstandandi tímabil hefur verið erfitt fyrir Dortmund sem var í fallsæti um áramótin en hefur náð að lyfta sér upp í miðja töfluna. Fyrir tímabilið var búist við liðinu í baráttu um Þýskalandsmeistaratitilinn.
Sagt er að Klopp telji sig vera kominn á endastöð með Dortmund eftir sjö ár hjá félaginu. Hann hefur tvívegis gert liðið að Þýskalandsmeisturum og einu sinni bikarmeisturum.
Klopp hefur lengi verið orðaður við stórastörf á Englandi en samkvæmt heimildum Bild ætlar hann að taka sér smá frí frá boltanum og safna kröftum. Hann hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á því að starfa í ensku úrvalsdeildinni einn daginn.
Klopp er nú þegar sterklega orðaður við Manchester City en Manuel Pellegrini er valtur í sessi eftir lélegt gengi að undanförnu.
Talið er að Thomas Tuchel muni taka við Dortmund fyrir næsta tímabil en hann tók einmitt við Mainz af Klopp á sínum tíma.