Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 15. apríl 2021 22:30
Aksentije Milisic
Arteta: Emery er sigursælasti þjálfari Evrópudeildarinnar
Mynd: Getty Images
„Við byrjuðum mjög vel og vorum sannfærandi. Við pressuðum þá hátt uppi og við ógnuðum þeim allan leikinn. Ég var mjög sáttur með hvernig við brugðumst við því þegar markið var dæmt af okkur," sagði Spánverjinn Mikel Arteta eftir frábæran sigur Arsenal á Slavia Prag í kvöld.

Arsenal var 3-0 yfir í hálfleik og átti liðið ekki í neinum vandræðum með Tékkanna. Leiknum lauk með 4-0 útisigri Arsenal og því samanlögð úrslit 5-1.

„Það hjálpaði hvernig við spiluðum gegn Sheffield United. Leikmennirnir voru með sjálfstraust og virkuðu ferskir frá fyrsti mínútu. Þetta var mjög mikilvægur sigur á mikilvægum kafla á tímabilinu."

Arsenal mætir gamla stjóra sínum, Unai Emery, í undanúrslitunum. Arteta hrósaði Emery eftir leik.

„Við höfum mikinn vilja og viljum bæta okkur á hverjum degi. Þetta verður mjög erfitt gegn Villareal. Unai Emery er sigursælasti þjálfari Evrópudeildarinnar."
Athugasemdir
banner
banner