Unai Emery og lærisveinar hans í Villareal komust í undanúrslit Evrópudeildarinnar í kvöld með samanlögðum 3-1 sigri á Dinamo Zagreb.
Þetta er í sjötta skiptið sem Emery kemst í undanúrslit keppninnar og er hann sá stjóri í sögunni sem hefur oftast komist á þetta stig Evrópudeildarinnar.
Í þrígang hefur hann komist svona langt með Sevilla, einu sinni Valencia, einu sinni Arsenal og nú Villareal. Þá hefur hann einungist tapaði einu sinni í undanúrslitunum en það var með Valencia tímabilið 2011-2012.
Emery hefur hann unnið Evrópudeildina í þrígang og í öll skiptin með Sevilla. Þar vann hann Evrópudeildina þrjú tímabil í röð.
Hann mætir sínu gamla félagi Arsenal í undanúrslitunum.
Unai Emery has reached the Europa League semi-finals more times (6) than any other manager in the competition's history:
— Squawka Football (@Squawka) April 15, 2021
✖️ 2011-12 Valencia
✓ 2013-14 Sevilla
✓ 2014-15 Sevilla
✓ 2015-16 Sevilla
✓ 2019-20 Arsenal
✓ 2020-21 Villarreal
He's only been knocked out once. #UEL pic.twitter.com/9s4ikGYDs2
Athugasemdir