Grindvíkingurinn ungi og efnilegi, Mikael Máni Þorfinnsson, dvelur þessa dagana á Ítalíu og er þar á reynslu hjá úrvalsdeildarfélaginu Torino.
Mikael Máni er miðjumaður sem fæddur er 2010 og var í byrjunarliði Grindvíkinga í bikarsigrinum gegn Keflavík í síðustu viku.
Hann kom við sögu í átta leikjum í Lengjudeildinni í fyrra og hefur spilað ellefu leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað eitt mark.
Torino situr í 12. sæti ítölsku A-deildarinnar. Félagið er með tengingu við Ísland því fyrri hluta árs 2022 var Róbert Quental Árnason á láni í unglingaliði félagsins frá Leikni.

Úr tilkynningu Grindavíkur
Okkar ungi og efnilegi miðjumaður Mikael Máni Þorfinnsson er staddur á Ítalíu þar sem hann er á reynslu hjá Torino fc þar sem hann mun æfa hjá félaginu í viku.
Mikael Máni er fæddur árið 2010 og hefur spilað vel fyrir meistaraflokkinn okkar í ár og er vel að þessu kominn.