Fotbolti.net
15.05.21 - 10:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Burnley og Leeds: Pope ekki með - Phillips byrjar og Jói á bekk

Bailey er í markinu

Bailey er í markinu

Canon

Mynd: EPA

Burnley og Leeds mætast á Turf Moor klukkan 11:30 og er búið að opinbera byrjunarliðin. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Burnley er í 15. sæti en Leeds er í 10. sæti með ellefu stigum meira. Leeds vann Tottenham í síðasta deildarleik og Burnley hefur unnið tvo af síðustu þremur. Burnley vann Fulham í síðasta leik. Jóhann Berg Guðmundsson var ónotaður varamaður gegn Fulham.
Sean Dyche, stjóri Burnley, gerir eina breytingu frá leiknum gegn Fulham. Nick Pope er ekki með Burnley í dag og því er Bailey Peacock-Farrell í markinu. Jói er á bekknum.

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, gerir tvær breytingar frá sigrinum gegn Spurs. Kalvin Phillips og Raphinha koma inn í liðið. Robin Koch og Tyler Roberts detta úr liðinu, Roberts er á bekknum en Koch er ekki með. Liam Cooper snýr þá aftur á bekkinn eftir leikbann og meiðsli.

Burnley: Pope, Lowton, Mee, Tarkowski, Taylor, Brownhill, Westwood, Cork, McNeil, Wood, Vydra.

Leeds: Meslier, Ayling, Llorente, Struijk, Alioski, Dallas, Koch, Roberts, Klich, Harrison, Bamford.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.