Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 17:30
Kári Snorrason
Æfa með rúgbípúða fyrir úrslitaleikinn gegn Arsenal
Rússinn Matvei Safonov hefur varið mark Parísarmanna á tímabilinu.
Rússinn Matvei Safonov hefur varið mark Parísarmanna á tímabilinu.
Mynd: EPA
PSG undirbýr sig sérstaklega fyrir ólæti í teignum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Arsenal í Búdapest síðar í mánuðinum.

Á æfingu liðsins í vikunni sáust markverðir liðsins á æfingu þar sem notaðir voru rúgbípúðar til að stjaka við markvörðunum þegar þeir reyndu að grípa fyrirgjafir og hornspyrnur undir pressu.

Liðin mætast á Puskas Arena 31. maí þar sem PSG freistar þess að verja Meistaradeildartitilinn.

Myndband sem franski miðillinn, RMC Sport, birti af æfingunni má sjá hér að neðan.



Slapp
banner
banner
banner