Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 10:36
Elvar Geir Magnússon
Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand
Powerade
Mateus Fernandes.
Mateus Fernandes.
Mynd: EPA
Morten Hjulmand.
Morten Hjulmand.
Mynd: EPA
Uppstigningardagur að baki og það er kominn föstudagur! Allt eins og það á að vera. Slúðurpakkinn í dag er nokkuð öflugur en BBC tók saman.

Arsenal hefur áhuga á Mateus Fernandes (21), portúgalska miðjumanninum hjá West Ham. Þá er Arsenal tilbúið að selja danska miðjumanninn Christian Nörgaard (32) sem hefur ekki náð að láta að sér kveða eftir að hann kom frá Brentford síðasta sumar. (The Times)

Paris St-Germain er meðal félaga sem hafa áhuga á Fernandes. (Athletic)

Manchester United fylgist með danska miðjumanninum Morten Hjulmand (26) hjá Sporting Lissabon. Hann er einnig á radarnum hjá Arsenal. (Caught Offside)

Úrúgvæski miðjumaðurinn Federico Valverde (27) vill vera áfram hjá Real Madrid en Manchester City og Paris St-Germain fylgjast með gangi mála og eru tilbúin ef spænska félagið ákveður að selja. (AS)

Chelsea vill fá Mike Maignan (30), markvörður AC Milan. Vonirnir um að fá franska landsliðsmarkvörðinn dvína verulega ef Chelsea kemst ekki í Meistaradeildina. (Gazzetta dello Sport)

Brasilíski landsliðsmaðurinn Joao Pedro (24) hefur verið orðaður við Barcelona en Chelsea hefur ekki í hyggju að selja hann. (Mail)

Bayer Leverkusen ætlar að reka danska stjórann Kasper Hjulmand sem tók við af Erik ten Hag í september. (Sky Sports Þýskalandi)

Andre Villas Boas forseti Porto segir að það sé fjárhagslega ómögulegt fyrir félagið að fá pólska markahrókinn Robert Lewandowski (37) sem hefur verið orðaður við brottför frá Barcelona. (Fabrizio Romano)

Everton, Crystal Palace og Bournemouth hafa sett sig í samband við danska félagið Midtjylland vegna áhuga á síleska miðjumanninum Dario Osorio (22). (Give Me Sport)

Aston Villa vill kaupa argentínska sóknarleikmanninn Matias Soule (23) frá Roma eftir að skilyrði um kaup Roma á Donyell Malen (27), sem er á láni hjá Roma frá Villa, voru uppfylld. (Gazzetta dello Sport)

Hayden Hackney (23), miðjumaður Middlesbrough, mun yfirgefa félagið ef tapið gegn Southapmpton mun standa og liðið verður áfram í Championship. Newcastle United gæti reynt að fá hann. (Chronicle)
Slapp
banner