Fotbolti.net
15.05.26 - 17:56
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Villa og Liverpool: Buendía og Gomez koma inn

Byrjunarlið Villa og Liverpool: Buendía og Gomez koma inn
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa og Liverpool eigast við í áhugaverðum slag í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Liðin sitja jöfn með 59 stig eftir 36 umferðir og eru aðeins einum sigri frá því að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

Þau eru fjórum stigum fyrir ofan Bournemouth með tvær umferðir eftir af tímabilinu. Það er því mikið undir í kvöld þegar bæði þessi lið munu reyna að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni.

Unai Emery, þjálfari heimaliðsins, gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem gerði óvænt jafntefli við Burnley um síðustu helgi. Pau Torres, Lucas Digne og Emiliano Buendía koma inn í liðið fyrir Ian Maatsen, Tyrone Mings og Ross Barkley.

Arne Slot gerir eina breytingu frá jafntefli gegn Chelsea þar sem Joe Gomez kemur inn fyrir Jeremie Frimpong sem er ekki í hóp.

Florian Wirtz og Mohamed Salah setjast á bekkinn eftir að hafa verið fjarri góðu gamni í síðustu umferð.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Lindelof, Tielemans, McGinn, Buendia, Rogers, Watkins.
Varamenn: Bizot, Barkley, Garcia, Abraham, Sancho, Douglas Luiz, Maatsen, Bogarde, Bailey.

Liverpool: Mamardashvili; Gomez, Konate, Van Dijk, Kerkez; Gravenberch, Jones, Mac Allister; Szoboszlai, Ngumoha, Gakpo
Varamenn: Woodman, Wirtz, Salah, Chiesa, Robertson, Nyoni, McConnell, Ndiaye, Wright
Byrjunarlið Villa og Liverpool: Buendía og Gomez koma inn
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.