Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 15. maí 2026 15:05
Elvar Geir Magnússon
„Eina ásættanlega niðurstaðan að Southampton verði dæmt úr leik“
Árbakkavöllur, heimavöllur Middlesbrough.
Árbakkavöllur, heimavöllur Middlesbrough.
Mynd: EPA
Daily Mail hefur fjallað ítarlega um málið.
Daily Mail hefur fjallað ítarlega um málið.
Mynd: Daily Mail
Middlesbrough krefst þess að Southampton verði dæmt úr leik í umspili Championship-deildarinnar og fái ekki að spila úrslitaleikinn við Hull á Wembley um sæti í úrvalsdeildinni.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Middlesbrough vegna njósnamálsins sem mikið hefur verið til umfjöllunar.

Í yfirlýsingunni segir að Southampton hafi unnið gegn heilindum íþrótta með því að njósna um æfingu Middlesbrough og eina ásættanlega niðurstaðan sé sú að liðið verði dæmt úr leik.

Hull City og Southampton eiga að mætast í úrslitaleiknum en beðið er eftir niðurstöðu úr rannsókn á njósnamálinu umtalaða. Dæmt verður í málinu þriðjudaginn 19. maí eða fyrr en Middlesbrough fær ekki að skila inn áliti þegar dæmt verður.

Leikgreinandi úr þjálfarateymi Southampton njósnaði um æfingu Middlesbrough, innan við 72 tíma viðmiðisins, áður en liðin mættust í fyrri undanúrslitaleik sínum. Hann faldi sig bak við tré og myndaði á æfingasvæði Middlesbrough. Þegar það var tekið eftir honum lagði hann á flótta sem virtist þaulskipulagður en hann lét sig hverfa inn í golfskála rétt hjá æfingasvæðinu og hafði fataskipti inni á salerni.

Gríðarlega mikið er í húfi en liðið sem vinnur úrslitaleikinn mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Möguleg refsing fyrir Southampton gæti verið sekt, stigafrádráttur eða jafnvel að liðið fær ekki að spila úrslitaleikinn.


Slapp
banner