Tryggðu sér sæti í Meistaradeildinni
Aston Villa 3 - 1 Liverpool
1-0 Morgan Rogers ('42 )
1-1 Virgil van Dijk ('52 )
2-1 Ollie Watkins ('57 )
3-1 Ollie Watkins ('73 )
4-1 John McGinn ('89 )
4-2 Virgil van Dijk ('92 )
1-0 Morgan Rogers ('42 )
1-1 Virgil van Dijk ('52 )
2-1 Ollie Watkins ('57 )
3-1 Ollie Watkins ('73 )
4-1 John McGinn ('89 )
4-2 Virgil van Dijk ('92 )
Aston Villa og Liverpool áttust við í spennandi slag í ensku úrvalsdeildinni sem gat tryggt meistaradeildarsæti fyrir sigurliðið.
Það ríkti nokkuð jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en Morgan Rogers náði forystunni fyrir heimamenn eftir vel útfærða stutta hornspyrnu. Rogers gerði virkilega vel að skora úr erfiðu færi með að leggja boltann snyrtilega í fjærhornið.
Staðan var 1-0 í leikhlé en hollenski varnarjaxlinn Virgil van Dijk, sem er fyrirliði Liverpool, jafnaði í upphafi síðari hálfleiks með föstum skalla eftir frábæra aukaspyrnu frá Dominik Szoboszlai.
Það var mikil ákefð í seinni hálfleiknum þar sem liðin skiptust á að sækja en heimamenn voru talsvert hættulegri í sínum sóknaraðgerðum og endurheimtu forystuna skömmu eftir jöfnunarmark Van Dijk. Ollie Watkins skoraði eftir að Szoboszlai rann illa með boltann í vörn. Rogers stal boltanum og lagði hann á Watkins sem skoraði.
Watkins fékk tækifæri til að bæta öðru marki við og skaut Emiliano Buendía í samskeytin áður en þriðja mark heimamanna leit dagsins ljós, og aftur var Watkins á ferðinni. Í þetta skiptið skoraði hann með frákasti eftir hornspyrnu. Giorgi Mamardashvili varði í tvígang frá leikmönnum Villa áður en Watkins fylgdi eftir af stuttu færi.
Staðan var þá orðin 3-1 og tóku gestirnir að sækja án þess að skapa mikla hættu. Þess í stað innsiglaði John McGinn sigur heimamanna með glæsilegu marki á lokamínútunum. McGinn lét vaða frá vítateigslínunni og sveif boltinn snyrtilega undir samskeytin.
Fjörið var þó ekki búið því Van Dijk skoraði sitt annað mark í uppbótartíma, með skalla eftir fyrirgjöf í kjölfar stuttrar hornspyrnu.
Meira var ekki skorað í fjörugum slag svo lokatölur urðu 4-2 fyrir Aston Villa sem er búið að tryggja sér meistaradeildarsæti næsta haust með þessum sigri.
Liverpool er þremur stigum á eftir Villa og er ennþá í bílstjórasætinu í baráttunni um síðasta lausa meistaradeildarsætið fyrir lokaumferð tímabilsins á heimavelli gegn Brentford.


