15.05.26 - 15:41
Kári Snorrason
Fertugur Neuer framlengir við Bayern

Neuer varð fertugur í mars síðastliðnum.

Mynd: EPA

Manuel Neuer hefur framlengt samning sinn við Bayern München um eitt ár.
Óvissa hafði verið um framtíð Neuer þar sem samningur hans átti að renna út í sumar. Hann hafði ekki gefið út hvort hann ætlaði að leggja hanskana á hilluna eða halda áfram.

Neuer fagnaði fertugsafmæli sínu í mars en hann hefur spilað 41 leik fyrir Bæjara á tímabilinu og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína á Bernabéu þegar liðið lagði Real Madrid að velli í Meistaradeildinni.
Vangaveltur hafa verið um hvort að Julian Nagelsmann muni velja Neuer í HM hóp Þjóðverja. Neuer hefur ekki varið mark Þýskalands síðan á EM 2024 en þá gaf hann út að landsliðshanskarnir væru komnir á hilluna.
Í sömu tilkynningu Bæjara kom jafnframt fram að Sven Ulreich, varamarkvörður liðisns, hefði jafnframt framlengt samning sinn við félagið um eitt ár.

2??0??2??7?? ??
— FC Bayern (@FCBayernEN) May 15, 2026
???? https://t.co/eDuzjRDDXy pic.twitter.com/mYrQFp5otS