Fotbolti.net
15.05.26 - 17:09
Kári Snorrason

Hearts getur bundið enda á fjögurra áratuga einokun - „Vilja allir að þeir vinni“

Tómas Bent verður ekki með á morgun.

Tómas Bent verður ekki með á morgun.

Canon

Mynd: Hearts

Hearts og Celtic eigast við í hreinum úrslitaleik um skoska meistaratitilinn á morgun. Leikurinn fer fram á Celtic Park en Hearts nægir jafntefli þar sem liðið er með stigi meira.

Tómas Bent Magnússon hefur verið lykilmaður í liði Hearts á tímabilinu en hann verður ekki með vegna meiðsla.
Hearts og Celtic mætast í hreinum úrslitaleik
TENGT EFNI

Hearts og Celtic mætast í hreinum úrslitaleik

Celtic er mun líklegra liðið samkvæmt veðbönkum fyrir leikinn, en Derek McInnes, stjóri Hearts, telur sína menn eiga góða möguleika.

Hann segir Hearts hafa rofið handrit skoska boltans oftar en einu sinni á tímabilinu og sér enga ástæðu til þess að liðið geti ekki gert það aftur á morgun.

Sir Alex sá síðasti
Hearts getur brotið upp einokunina í skoska boltanum, þar sem ekkert annað lið en Celtic eða Rangers hefur orðið skoskur meistari undanfarin 40 ár.

Síðasta liðið fyrir utan Celtic og Rangers til að lyfta skoska meistaratitlinum var Aberdeen tímabilið 1984 til 1985, þá undir stjórn Sir Alex Ferguson.

Martin O'Neill sagði á blaðamannafundi í dag: „Allir utan Celtic og vilja að Hearts vinni.“ Þegar hann var spurður út í umræðu eftir vægast sagt umdeildan vítadóm Celtic í síðasta leik.

Leikar hefjast klukkan 11:30 á morgun og er leikurinn sýndur á Viaplay.
Celtic þarf á sigri að halda á morgun.

Celtic þarf á sigri að halda á morgun.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.