Fotbolti.net
15.05.26 - 23:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jasmín Erla: Misstirðu af því?

Auglýsing
Jasmín í leiknum í kvöld.

Jasmín í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn
„Það er alltaf erfitt að koma til Keflavíkur og spila á þessu grasi, og hvað þá í rigningu og roki. Þær eru alltaf harðar fyrir. Þetta var erfitt," sagði Jasmín Erla, leikmaður Víkings, eftir 0-2 sigur gegn Keflavík í Mjólkurbikar kvenna í kvöld.

Leikurinn fór í framlengingu og þar hafði Víkingur betur þar sem Jasmín var í aðalhlutverki eftir að hafa komið inn af bekknum.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 2 Víkingur R.
„Ég var alltaf sannfærð um að við myndum ná að klára þetta," sagði Jasmín eftir leikinn en voru þær ekkert pirraðar að ná ekki að klára þetta ekki fyrir framlengingu?

„Jú, auðvitað. Svona er þetta bara. Við náðum að klára þetta og það er það eina sem skiptir máli."

Það var erfitt að sjá úr fjölmiðlastúkunni hver skoraði fyrra markið en Jasmín fagnaði því.

„Þetta var skallamark, misstirðu af því? Ég skora ekki mörg skallamörk" sagði Jasmín ákveðin og hló. Hún skoraði og lagði upp. „Það er alltaf gaman að koma að mörkum sama hvernig það er."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.