Fjórir leikir hófust samtímis í Mjólkurbikarnum í kvöld þar sem Keflavík og Víkingur R. eru farin í framlengingu eftir markalaust jafntefli í Keflavík.
Í öðrum leikjum kvöldsins steinlá Þór/KA á heimavelli gegn Stjörnunni eftir að staðan var jöfn 1-1 í leikhlé.
Heimakonur á Akureyri voru sterkara liðið framan af í seinni hálfleik en nýttu ekki færin sín. Gestirnir úr Garðabæ voru grimmir og refsuðu nánast í hvert skipti sem tækifæri bauðst og náðu að skora þrjú mörk á síðasta hálftíma leiksins svo lokatölur urðu 1-4.
Snædís María Jörundsdóttir var atkvæðamest með tvennu. Þetta er afar svekkjandi fyrir Þór/KA sem spilaði fínan leik.
FH skoraði þá sjö mörk á Selfossi. Ingibjörg Magnúsdóttir setti tvennu í fyrri hálfleik en Nia Raisa kom inn af bekknum á 60. mínútu og skoraði þrjú mörk til að jarða Selfyssinga.
Fram sló að lokum ÍA úr leik með sannfærandi 3-0 sigri sem hefði getað verið stærri.
Þór/KA 1 - 4 Stjarnan
0-1 Snædís María Jörundsdóttir '8
1-1 Birgitta Rún Finnbogadóttir '45
1-2 Snædís María Jörundsdóttir '66
1-3 Telma Steindórsdóttir '69
1-4 Andrea Mist Pálsdóttir '96
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 4 Stjarnan
Selfoss 0 - 7 FH
0-1 Ingibjörg Magnúsdóttir '2
0-2 Helena Maree Errington '7
0-3 Ingibjörg Magnúsdóttir '16
0-4 Berglind Freyja Hlynsdóttir '59
0-5 Nia Raisa Christopher '66
0-6 Nia Raisa Christopher '77
0-7 Nia Raisa Christopher '82
Lestu um leikinn: Selfoss 0 - 7 FH
Fram 3 - 0 ÍA
1-0 Alda Ólafsdóttir '24
2-0 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir '49
3-0 Una Rós Unnarsdóttir '57
Lestu um leikinn: Fram 3 - 0 ÍA



