Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 15. maí 2026 15:11
Kári Snorrason
Sigfríð Ingólfsdóttir látin
Sigfríð var einn þekktasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi.
Sigfríð var einn þekktasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi.
Mynd: Vikudagur - Þröstur Ernir
Sigfríð Ingólfsdóttir, einn þekktasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi, er látin. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 9. maí, 73 ára að aldri.

Akureyri.net greinir frá andlátinu.

Sigfríð var mörgum landsmönnum kunnug sem helsti stuðningsmaður Arsenal. Heimili hennar á Akureyri var oft kallað Arsenal-húsið og var gjarnan skreytt merkjum félagsins.

Í skemmtilegu viðtali við Arnar Björnsson á Stöð 2 árið 2017 sýndi hún frá skreyttu heimili sínu og frá kettinum Wenger, sem var nefndur í höfuðið á Arsene Wenger, fyrrum stjóra liðsins.

Í samtali við RÚV fyrir tveimur árum sagði hún að Arsenal varningurinn hefði verið hverrar krónu virði. Hún sagði þó stærstu áhyggjurnar snúa að því hvað yrði um safnið þegar hún félli frá.

Sigfríð var heiðursmeðlimur Arsenal klúbbsins á Íslandi en hún var jafnframt stuðningsmaður KA.
Slapp
banner
banner