Fotbolti.net
15.05.26 - 23:48
Ívan Guðjón Baldursson

Slot: Fólk vanmetur hvað einn góður gluggi getur gert

Slot: Fólk vanmetur hvað einn góður gluggi getur gert
Canon

Mynd: EPA

Arne Slot þjálfari Liverpool svaraði spurningum eftir 4-2 tap gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld og virðist vera bjartsýnn fyrir framtíðinni.
Liverpool gat tryggt sér meistaradeildarsæti með sigri á Villa Park en lenti undir í tvígang og réði ekki við heimamenn í seinni hálfleik. Núna gæti liðið þurft að sigra lokaleikinn gegn Brentford til að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeildina næsta haust.

Gengi Liverpool á tímabilinu þykir ekki nægilega gott og hefur Slot verið gagnrýndur harkalega. Hann hefur trú á að vera áfram í þjálfarastólnum þegar næsta tímabil fer af stað.

Slot bjartsýnn: Verður allt annað á næstu leiktíð
TENGT EFNI

Slot bjartsýnn: Verður allt annað á næstu leiktíð



„Ég skil að stuðningsmenn hafi ekki mikla trú þessa stundina eða tilfinningu fyrir því að næsta tímabil verði miklu betra, en ég held að þeir séu að vanmeta hvað einn góður félagaskiptagluggi getur gert. Hvað nýtt upphaf getur gert," sagði Slot eftir tapið. „Við vitum hvað við þurfum að laga fyrir næstu leiktíð."

Meiðslavandræði hafa hrjáð Liverpool allt tímabilið, sérstaklega þegar kemur að framherjunum Alexander Isak og Hugo Ekitike sem kostuðu samanlagt um 200 milljónir punda. Jeremie Frimpong, Florian Wirtz og Milos Kerkez voru einnig keyptir inn síðasta sumar.

„Eitt af því sem við þurfum augljóslega að bæta er breiddin í hópnum. Ef maður er án níu leikmanna sem eru næstum því allir byrjunarliðsmenn þá verður maður að bæta nokkrum leikmönnum við hópinn. Það voru mikilvægir leikmenn að spila sitt fyrsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni og þeir munu vera betri á næstu leiktíð. Aðlögunarferlið getur verið erfitt en við getum öll séð að þetta er á leið í rétta átt.

„Þegar við erum betra liðið á vellinum þá verðum við að skapa fleiri færi og þegar við sköpum færin þá verðum við að nýta þau betur. Við megum heldur ekki fá jafn mikið af föstum leikatriðum á okkur og við höfum gert á tímabilinu. Það er stutt á milli þess að vinna og tapa í úrvalsdeildinni. Bætt ákvarðanataka leikmanna í ákveðnum aðstæðum getur ein og sér skilað sér með stórbættum árangri á stöðutöflunni."
Slot: Fólk vanmetur hvað einn góður gluggi getur gert
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.