Arnór Sigurðsson, leikmaður CSKA Moskvu í Rússlandi, heimsótti unga iðkendur í Knattspyrnuskóla ÍA í dag.
Arnór er uppalinn á Akranesi og spilaði hann níu leiki með meistaraflokki ÍA í deild og bikar áður en hann fór út til Norrköping í Svíþjóð.
Uppgangur hans hefur verið mjög hraður. Hann var seldur til CSKA Moskvu í fyrra og eftir frábært tímabil þar hefur hann verið orðaður við enn stærri félög eins og til að mynda Napoli á Ítalíu.
Sjá einnig:
Arnór Sig tilnefndur sem leikmaður ársins hjá CSKA
Það vakti mikla lukku að fá Arnór í heimsókn í Knattspyrnuskólann eins og sjá má hér að neðan.
Landsliðs og atvinnumaðurinn okkar hann @arnorsigurdsson kíkti í heimsókn á okkar ungu iðkendur í Knattspyrnuskóla ÍA í dag og vakti það mikla lukku! #skagamenn pic.twitter.com/DdvJFq7rxS
— ÍA Akranes FC (@ia_akranes) June 14, 2019
Athugasemdir